Hjá Svörum strax starfa yfir 35 íslenskir starfsmenn í Barcelona og víðar á Spáni sem deila ástríðu fyrir framúrskarandi þjónustu. Við sameinum reynslu, nýsköpun og alþjóðlegt sjónarhorn til að skapa einstakt vinnuumhverfi þar sem fagmennska og gleði fara saman.
Fjölbreyttur bakgrunnur starfsfólks okkar, nútímaleg tækni og sveigjanleg vinnuaðstaða gera okkur kleift að veita persónulega og skilvirka þjónustu sem stenst alþjóðlegan samanburð.