Lausnir fyrir þjónustuver

Snjallar lausnir fyrir nútíma þjónustu

Yfir 100 fyrirtæki treysta Svörum strax fyrir þjónustu við sína viðskiptavini. Símsvörun, úthringingar, gervigreindarlausnir og þjónustuver. Allt á einum stað.

240K+ símtöl árlega
35+ starfsmenn
Síðan 2019
Phone interface showing customer service features

Treyst af leiðandi fyrirtækjum

Rafal
Epal
ELKO
FlyOver Iceland
Icewear
Eignarhaldsfélagið Hornsteinn
BM Vallá
Brimborg
MAX1
Vélaland

Símsvörun

Áreiðanleg og persónuleg símsvörun síðan 2019. Við bjóðum upp á sérhæfða símsvörun, vöktun tölvupósts og gervigreindarlausnir sem bæta þjónustu og auka afköst.

Almenn símsvörun

Almenn símsvörun

Einföld og áreiðanleg þjónusta fyrir öll fyrirtæki. Við svörum í þínu nafni, sendum símtöl áfram á réttan starfsmann og tökum niður ítarleg skilaboð. Léttir álag á starfsfólki og hægt að setja upp með stuttum fyrirvara.

Þjónustuver

Þjónustuver

Heildarlausn með fullkomlega þjálfuðum starfsmönnum sem þekkja þitt fyrirtæki, vörur og þjónustu. Sérhæfðir starfsmenn sem verða hluti af þínu teymi og geta svarað flóknum spurningum, leyst vandamál og veitt tæknilega aðstoð byggða á þínum upplýsingakerfum.

24/7 símsvörun

24/7 símsvörun

Gervigreindarfulltrúi sem vinnur allan sólarhringinn. Þekkir þitt fyrirtæki, svarar spurningum og tekur við pöntunum með nákvæmni og hraða. Sendir flókin mál áfram til okkar eða þíns starfsfólks. Vinnur meðan þú sefur og missir aldrei af símtali.

Gervigreindarlausnir

Símtalagreining, gervigreindarfulltrúar og stuðningur við starfsfólk. Allt sérsniðið að þínum rekstri.

Key Car RentalBrimborgDrífaFast PartsSky Lagoon

Við búum til gervigreindarlausnir sem vinna með þínum kerfum, styðja við starfsfólk í símsvörun og skila innsýn úr hverju samtali.

Sérfræðiþekking á þínum rekstri

Byggð á þínum gögnum, stefnum og verkferlum.

Tengd þínum kerfum

Virkar innan þinna kerfa. Bókunarkerfi, vefverslun, þjónustukerfi og fleira.

Innsýn úr samskiptum

Þú getur fylgst með öllum samtölum í rauntíma. Séð hvað kemur upp, hvar má bæta og hvar tækifæri felast.

Gervigreind og fólk

Flóknari mál fara til 35+ manna þjónustuteymis.

Sérsniðin þjónusta fyrir öll fyrirtæki

Við sameinum reynslu í símsvörun við nýjustu gervigreindartækni. Við greinum tilgang samtala, leysum málin strax og tryggjum að öll mál lendi á réttum stað. Þú getur fylgst með öllu í rauntíma.

Hjá okkur starfa yfir 35 íslenskir starfsmenn – bæði í Barcelona og í fjarvinnu – sem sinna þjónustu fyrir meira en 100 fyrirtæki. Við sjáum um uppsetningu, þjálfun og stuðning – svo þú getur einbeitt þér að þínu rekstri.

Úthringingar

Sérhæfð söluteymi með reynslu af B2B og B2C markaði. Tengd þínu CRM með rauntíma yfirsýn yfir hvert símtal.

Húsfélagið HÍHúsfélagið HSÍGjaldskilLifandi Vísindi

Reynsla sem skilar árangri. Við höfum séð um úthringiverkefni fyrir mörg af stærstu fyrirtækjum landsins.

B2B og B2C reynsla

Sérhæfð teymi fyrir báða markaði með djúpa þekkingu á íslenskum viðskiptum

Beintengt þínu CRM

Tengumst við þín kerfi og mælum árangur í rauntíma

Öflugt sölufólk með reynslu

Þjálfað í þínum vörum og þjónustu með áralanga söluþjálfun

Persónuleg og árangursrík samskipti

Byggjum traust og sköpum varanlegt gildi í hverju samtali

Störf fyrir Íslendinga á Spáni

Ertu Íslendingur búsettur á Spáni? Við leitum alltaf að hæfileikaríku fólki sem vill vinna í skemmtilegu alþjóðlegu umhverfi í Barcelona, víðar á Spáni eða í fjarvinnu.

Vertu hluti af teyminu

Sækja um starf

Ertu Íslendingur búsettur á Spáni? Við leitum alltaf að hæfileikaríku fólki sem vill vinna í skemmtilegu alþjóðlegu umhverfi í Barcelona, víðar á Spáni eða í fjarvinnu.

Barcelona skyline
35+

Íslenskir starfsmenn á Spáni

Við erum stolt af að vera einn stærsti íslenski vinnustaðurinn á Spáni og skapa störf fyrir Íslendinga erlendis.

Lífsgæði í Barcelona

Njóttu sólarinnar og menningarinnar á meðan þú vinnur fyrir íslenskan markað

Sveigjanleiki

Fjarvinna og sveigjanlegar vaktir sem henta þínu lífi

Þróunarmöguleikar

Lærðu nýja hluti og þróaðu þig í starfi með frábæru teymi

Hvað segja viðskiptavinir okkar?

"

FlyOver Iceland nýtir sér þjónustu Svörum strax og erum við virkilega ánægð með þetta fyrirkomulag. Starfsfólk Svörum strax var mjög fljótt að læra inn á þjónustu okkar og einkennast öll samskipti af faglegum vinnubrögðum og góðu viðmóti. Þessi þjónusta hefur klárlega aukið ánægju gesta og aukið þjónustu okkar.

Erla Björg Hafsteinsdóttir
Guest Experience Manager, FlyOver Iceland
"

Ég get hiklaust mælt með Svörum strax, þau hafa veitt Rafal trausta og góða þjónustu frá fyrsta degi. Svörum strax tók við símsvörun hjá okkur 2022. Við erum virkilega ánægð með fyrirkomulagið og samskiptin okkar á milli. Þau eru með hraðar hendur og komust vel inn í starfsemina strax. Okkur finnst stundum eins og þau séu ein af okkar starfsfólki - samskiptin eru alveg frábær.

Hulda Símonardóttir
Þjónustu- og viðburðarstjóri, Rafal
"

Epal hefur nýtt sér yfirfallsþjónustu hjá Svörum strax síðan í lok árs 2022 en þjónustan hefur verið til fyrirmyndar og einkennist af fagmannlegum vinnubrögðum. Samstarf okkar hefur verið mjög gott og hjálpað okkur mikið á álagstímum við símsvörun.

Kjartan Páll Eyjólfsson
Framkvæmdastjóri, Epal
"

Svörum strax hefur frá upphafi sýnt mikinn sveigjanleika hvað varðar þjónustuna sem þau bjóða upp á. Þau eiga létt með að aðlaga sig eftir okkar þörfum – sem eru frekar sveiflukenndar því Icewear er með viðskiptavini út um allan heim. Það er mikill kostur að Svörum strax er íslenskt fyrirtæki og geta svarað frekari spurningum um Ísland sem eru fyrir utan hefðbundna retail ramman.

Robert van Spanje
Vefstjóri, Icewear
"

Svörum strax hefur staðið sig frábærlega við að svara símtölum sem annars hefðu hringt út hjá okkur á álagstímum. Það er líka góð tilfinning að vita að öllum viðskiptavinum sé svarað og öllum skilaboðum komið til skila.

Skúli Þór Johnsen
Íslandsbílar
"

Við hjá Lögþing lögmannsstofu erum mjög ánægð með þjónustuna frá Svörum strax - hvort sem það lítur að samskiptum á netspjalli stofunnar eða svara í borðsíma stofunnar. Felur þjónustan í sér mikið hagræði og einföldun fyrir okkar vinnustað.

Guðbrandur Jóhannesson hrl.
Hæstaréttarlögmaður, Lögþing

Viltu bæta þjónustu og fá betri rekstrarinnsýn?

Við getum byrjað að svara fyrir þig innan viku. Fáðu ókeypis greiningu á því hvernig við getum bætt þína þjónustu og veitt þér betri yfirsýn.

Svörum strax

Öflugt þjónustuver í Barcelona með 35+ íslenskum starfsmönnum. Við samþættum mannlega þjónustu og gervigreind til að veita framúrskarandi upplifun fyrir þína viðskiptavini.

El MUNDO BUENO DE ISLANDIA, SOCIEDAD LIMITADA.

Þjónusta

Fyrirtækið

Hafðu samband

© 2026 Svörum strax. Allur réttur áskilinn.

Svörum strax er stofnað og rekið í Barcelona á Spáni.

×
Hæ! Hvernig getum við aðstoðað?